áhrif kílómetragjalds.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir ræðuna. Nú tók auðvitað hv. þm. Ólafur Adolfsson þátt í umræðu um innleiðingu kílómetragjalds. Raunar tók flokkurinn sem hann tilheyrir þátt í undirbúningi þess máls sem hefur verið í undirbúningi mjög lengi og hv. þingmaður veit eins vel og ég að þegar þessi breyting var skipulögð var það með það að markmiði að áhrifin væru nettó núll. Raunar er það þannig að í þeim breytingum sem urðu á vísitölu neysluverðs núna um áramót er það mat Hagstofu Íslands að áhrifin á vísitölu neysluverðs séu hálft prósent. Auðvitað er þetta veruleg kerfisbreyting en við þurfum að taka tillit til þess að fram að þessari kerfisbreytingu hafði þróunin verið sú að reikningurinn fyrir viðhaldi vegakerfisins hafði í stærra mæli verið sendur á þá sem óku eldri og stærri bílum. Það er athyglisvert að hv. þm. Ólafur Adolfsson geri landsbyggðina hér að umræðuefni vegna þess að það var vandlega kannað hver áhrifin væru einmitt á landsbyggðina. Þau voru nettó jákvæð. Það er alveg ljóst að í meiri háttar kerfisbreytingum geta spilin fallið á ýmsa vegu en að kynna þetta sem skattahækkun, þegar hv. þingmaður veit fullvel að svo var ekki, finnst mér ekki fullkomlega sanngjarnt.