157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

áhrif kílómetragjalds.

[15:15]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ráðherra minntist hér á að Sjálfstæðisflokkurinn hefði tekið þátt í að undirbúa þetta mál; það hefði í rauninni verið að mestu leyti klárt af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Hann skautar alveg fram hjá því að nefna að þingflokkur Sjálfstæðismanna hins vegar hafnaði málinu, þannig að það fór ekki í gegn. Viðvörunarorð stjórnarandstöðunnar hér hafa einmitt lotið að því að þetta sé ómögulegt mál. Af hverju viljum við vera fyrsta þjóð í heimi til að búa til þetta kerfi? Af hverju er þetta hvergi til annars staðar?

En það fer ekki vel á því að forsvarsmenn hæstv. ríkisstjórnar firri sig ábyrgð eða skelli skuldinni á aðra, hvað þá að ósekju. Fyrirtækin og heimilin í landinu bera ekki ábyrgð á verðlagsþróun heldur búa við hana, bregðast við aðstæðum og þeim hvötum sem skapaðir eru hverju sinni. Þetta veit hæstv. ráðherra. Hagstjórnin er á höndum þriggja aðila, ríkisstjórnarinnar, Seðlabankans og vinnumarkaðarins, ekki heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Nú hefur hæstv. ráðherra sagt að aðhalds sé þörf í ríkisrekstrinum; raunverulegt aðhald, ekki svokallað aðhald á tekjuhlið. (Forseti hringir.) Nóg er komið af skattahækkunum. Þar erum við sammála. En hvar er það aðhald? Það hefur öllum öðrum um að kenna að aðhaldið er eins og það hefur verið boðað og frú forseti, það er í mýflugumynd.