157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun verðbólgu og vaxta.

[15:18]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég er á svipuðum slóðum og félagar mínir hér á undan og vil ræða nýjustu verðbólgumælingar sem eru okkur öllum mikið áhyggjuefni. Verðbólgan sem virtist á niðurleið mælist nú 5,2%. Það er vissulega krefjandi verkefni fyrir ríkið að ná niður verðbólgu þegar fjárhagsárið er hafið og útgjaldamikil fjárlög voru samþykkt fyrir ekki margt löngu. En þessi þróun skapar hættu á að vextir haldist hærri lengur en nokkurn grunaði, greiðslubyrði heimila verði áfram óeðlilega þung og höfuðstóll verðtryggðra lána haldi áfram að hækka í takt við vísitölu. Þetta hefur skýrar afleiðingar fyrir heimili og fyrirtæki í landinu. Verðtryggð lán hækka í takt við vísitölu neysluverðs. Sem dæmi má nefna að 1,15% hækkun vísitölu á einum mánuði þýðir um 23 milljarða kr. viðbót á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána heimilanna. Þetta er sjálfvirk skuldahækkun óháð greiðslubyrði heimilanna. Hún bætist ofan á háa vexti og eykur bæði greiðslubyrði og skuldastöðu samtímis. Það lítur allt út fyrir að stjórnvöld hafi stórlega vanmetið áhrif eigin gjaldtöku á verðbólguna. Hækkandi verðbólga setur jafnframt í hættu þann grundvöll sem langtímakjarasamningar vinnumarkaðarins byggjast á.

Getur hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra veitt okkur hér á Alþingi og landsmönnum skýra innsýn í hvað stjórnvöld hyggjast gera núna í ljósi stöðunnar? Eru t.d. uppi áform um að gefa tilmæli til fagráðherra um að draga úr útgjöldum eða seinka þeim útgjöldum sem ekki eru lögbundin og hægt er að fresta án lagabreytinga, með tímabundnu ráðningarstoppi, endurskoðun á ráðgjafarkaupum, hugsanlega einhverjum tilfærslum verkefna á rekstrarliðum eða bara einhverju öðru? Með því væri sett nýtt og kröftugt opinbert aðhaldsmarkmið fyrir árið 2026.

Mig langaði líka að koma aðeins inn á komandi fjármálaáætlun og hvort hæstv. ráðherra muni leggja til (Forseti hringir.) metnaðarfyllri markmið um umtalsverðan afgang á fjárlögum 2027, ekki aðeins jöfnuð eins og talað hefur verið um, (Forseti hringir.) þannig að markaðsaðilar sjái að ríkið ætli sér að kæla verðbólguvæntingar með trúverðugum hætti.