157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun verðbólgu og vaxta.

[15:22]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð nú að segja að 143 milljarða kr. aukning á milli ára, 9%, sýnir ekki mikil merki um nægilegt aðhald. En það er eitt að horfa til næstu fjármálaáætlunar og langtímastefnumótunar en það eru 11 mánuðir eftir af árinu og staðan er þung. Staðan er þung fyrir heimilin í landinu og staðan er þung fyrir fyrirtæki í landinu. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að bregðast við ástandinu núna?

Árið 2024 tók þáverandi ríkisstjórn ákvörðun um að hækka barnabætur og vaxtabætur. Hærri fæðingarorlofsgreiðslur og gjaldfrjálsar skólamáltíðir urðu líka að veruleika í tengslum við kjarasamninga og fleira. Svíþjóð og Danmörk hafa tekið ákvörðun um að lækka matarkörfuna og styðja þannig sérstaklega barnafjölskyldur á grunni lægri matarskatts og beinna tilfærslna. Ég vil því spyrja: Hvað ætlar hæstv. ríkisstjórn að gera á næstu 11 mánuðum eða út árið 2026 fyrir einstaklinga og umfram allt fjölskyldur með börn? Við erum í febrúar 2026 og við búum við hækkandi verðbólgu og fráleitt vaxtastig. (Forseti hringir.) Það væri ágætt að fá upplýsingar frá hæstv. fjármálaráðherra um hvað ríkisstjórnin ætlar að gera til að mæta stöðu fjölskyldna í landinu núna á næstu vikum og mánuðum.