157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun verðbólgu og vaxta.

[15:24]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurninguna. Hún hefur sennilega ekki verið komin í salinn þegar ég renndi yfir það rétt örlítið fyrr á þessum fundi að sú tala sem hún nefnir varðandi útgjaldavöxt milli ára er á allan hátt hæpin og sýnir einhvers konar misskilning á því hvar gjöld ríkisins falla og hvernig bókhaldi ríkisins er háttað, og það er nokkuð áhyggjuefni. Síðan langar mig til að víkja að nokkrum þeim hugmyndum sem hv. þingmaður kom að sem allar uppfylla því miður það skilyrði að vinna gegn því markmiði ríkisins að lækka verðbólgu, eru eftirspurnarhvetjandi aðgerðir. Ég er ekki að segja að slíkar aðgerðir séu algerlega útilokaðar en það er auðvitað ákveðið áhyggjuefni þegar lausnirnar sem bent er á eru fremur fallnar til þess að gera vandann verri en betri.