157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

fjármögnun innviðaframkvæmda.

[15:25]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Fólk og fyrirtæki hafa heldur betur orðið fyrir barðinu á auknum sköttum og gjöldum og því ástandi sem er í efnahagslífinu núna. Þessar auknu álögur hafa verið réttlættar af hæstv. ríkisstjórn til þess að setja aukinn kraft í innviðaframkvæmdir. Hvaðan hafa þessi gjöld helst komið? Jú, veiðigjöldin sem koma mest af landsbyggðinni, eins og hefur verið rætt í dag, vörugjöld og kílómetragjöld, það hefur helst bitnað á landsbyggðinni. Og hvað sjáum við svo í nýframlagðri samgönguáætlun? Þaðan sem tekjurnar af þessum gjöldum öllum koma er ekkert nema niðurskurður. Það eina sem við sjáum að sé staðið við, við stóru orðin, er það að tekjurnar, eða væntar tekjur, af veiðigjöldunum fara vissulega í aukið viðhald vega og aukna vetrarþjónustu en allar nýframkvæmdir og þjónusta eru dregnar frá annars staðar. Eins og á Reykjanesinu þar sem bílaleigurnar eru flestar sem borga mikið í kílómetragjöldunum og vörugjöldunum, þar er Reykjanesbrautinni frestað. Öryggisvegi, almannavarnavegi og atvinnulífsuppbyggingarvegi, Nesvegi, er frestað. Við förum til Þorlákshafnar þar sem er ein mesta uppbygging á landinu núna og útflutningsverðmætin, þar er höfninni frestað, sett á ís. Við förum til Vestmannaeyja, þar er dregið úr ferðum Herjólfs og framlögum til þess og dýpkun hafnarinnar sem og annarri þjónustu. Það er það sveitarfélag sem borgar mest í veiðigjöldin. Við förum austur á land, þar er gangaframkvæmdum og öðru frestað og boðið upp á hringtorg. Stór hluti af verðmætasköpun landsins er þar og í þeim landsfjórðungi. Ég spyr hæstv. innviðaráðherra: Af hverju eru þessi gjöld og álögur ekki (Forseti hringir.) settar í þessa þjónustu og framkvæmdir í staðinn fyrir að draga úr þjónustunni?