fjármögnun innviðaframkvæmda.
Virðulegi forseti. Það var sérkennilegt að einu svörin sem ég fékk frá hæstv. ráðherra voru þau sem ég kom sjálfur með í fyrirspurninni um það að veiðigjaldapeningurinn hafi vissulega farið í aukið viðhald og aukna vetrarþjónustu. Viðbótargjöldin sem voru sett, kílómetragjöldin og vörugjöldin, voru upp á 11 milljarða. Samt er samdráttur í almenningssamgöngum hringinn í kringum landið og ekki síst á Suðurnesjum þar sem ferðamennirnir koma inn og borga töluvert í þessi mál. Reykjanesbrautinni er frestað og það er verið að fresta hafnarframkvæmdum. Hvað eiga Vestmannaeyingar að segja, sem borga hvað mest í veiðigjöld? Er mikil vetrarþjónusta eða viðhald vega í Vestmannaeyjum? Nei, en þar er ferjan sögð vera almenningssamgöngur en ekki þjóðvegurinn þeirra og dregið úr þjónustu og fjárframlögum. Hvert fóru þessir 11 milljarðar sem eru að hækka verðbólgu landsmanna hjá fólki og fyrirtækjum, eru að hækka allan kostnað á landsbyggðinni og draga þar úr ferðaþjónustu? Hvert eru þessir peningar að fara? (Forseti hringir.) Af hverju sjáum við ekki í samgönguáætlun auknar framkvæmdir hjá þeim sem borga og aukna þjónustu á þeim stöðum sem peningarnir koma frá? Hvar eru þessir peningar, (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra?