fjármögnun innviðaframkvæmda.
Virðulegur forseti. Varðandi kílómetragjaldið þá er þar um kerfisbreytingu að ræða. Við erum núna í fyrsta sinn í langan tíma með fullfjármagnaða samgönguáætlun á aðgerðartíma áætlunarinnar, þ.e. frá árinu 2026–2030. (Gripið fram í: Með því að fresta framkvæmdum? )Á heildartíma áætlunarinnar erum við að setja yfir 1.000 milljarða í samgöngumál, bara á tímabilinu 2026–2030 er það 361 milljarður og hv. þingmaður ætti að vita að skatttekjurnar eru ekki eyrnamerktar. Við erum innan ramma fjármálaáætlunar. Það var verið að tala um verðbólgu hér áðan. Fyrsta verkefni ríkisstjórnarinnar er að ná niður verðbólgunni og vaxtastiginu í landinu. Það er verkefni númer eitt, tvö, þrjú, fjögur og fimm. (Gripið fram í: Gengur vel. )Það gengur betur en hjá síðustu ríkisstjórn og þið ættuð nú að vita af hverju þið voruð ekki kosin inn, af hverju þið fenguð svona lélegt fylgi. Það var nákvæmlega út af þessu verkefni. Og að vera að halda því fram að við séum ekki að fara í neinar nýjar framkvæmdir, (Forseti hringir.) hv. þingmaður ætti bara að lesa samgönguáætlunina. Við erum að fara að stofna innviðafélag til að fara í stórframkvæmdir. Sundabraut verður stærsta framkvæmd Íslandssögunnar. (Forseti hringir.) Við erum núna að fara líka í jarðgangaframkvæmd á næsta ári (Gripið fram í: Hvenær? )sem hefur ekki verið farið í síðan 2020, síðan Dýrafjarðargöngunum var lokið. Og af hverju er það? Hv. þingmaður ætti að spyrja sig af hverju. Við erum verkstjórn, síðasta ríkisstjórn var það svo sannarlega ekki.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn og ráðherra að virða ræðutímann og láta vera að freistast til þess að kalla fram í ræður þingmanna. Það truflar.)