157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

strandveiðar.

[15:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það hefur legið fyrir síðan í kosningum að strandveiðisjómenn voru plataðir til að kjósa Flokk fólksins í þeim kosningum en nú virðist blasa við að annaðhvort hafa samstarfsflokkar Flokks fólksins eða Flokkur fólksins sjálfur platað sig því að skyndilega birtist okkur vandræðagangur er varðar strandveiðimál ríkisstjórnarinnar. Nú er nýlokið umsagnarferli um strandveiðireglugerð hæstv. innviðaráðherra og svo vægt sé til orða tekið þá rekur strandveiðimenn í rogastans. Ég rak augu í umsögn þar inni sem er skrifuð af frambjóðanda Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi og þar segir, með leyfi forseta:

„En eftir stendur að það er ekki tryggt að við strandveiðifólk höfum 4 mánuði yfir sumarið og nú er kominn janúar, þetta er allt of seint komið. Flokkur fólksins, farið nú að klára það sem þið lofuðuð og hættið þessu svikarugli og komið með það sem virkar, ekki vantar frá okkur grasrótinni ráðin til ykkar en hún er bara notuð þegar þarf að koma ykkur á þing.“

Undir þetta skrifar með kveðju frambjóðandi Flokks fólksins.

Í þessu samhengi og í ljósi þeirra takmarkana sem nú blasir við að verða innleiddar gagnvart því hverjir geta stundað strandveiðar þá verð ég í fyrsta lagi að spyrja hæstv. ráðherra: Var flokkurinn plataður þegar málaflokkurinn var fluttur á milli ráðuneyta, frá atvinnuvegaráðuneytinu til innviðaráðuneytisins? Hver er afstaða ráðherrans til þeirra sjónarmiða sem frambjóðandinn setur fram sem ég las upp rétt í þessu? Og hvað sér hæstv. ráðherra fyrir sér að margir bátar muni stunda strandveiðar á næsta strandveiðitímabili miðað við þær forsendur sem ráðherrann hefur lagt til í reglugerð sinni?