strandveiðar.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að heyra áhuga Miðflokksins á strandveiðum og smábátaútgerð. Ef einhver flokkur á Alþingi Íslendinga er á móti smábátaútgerð og strandveiðum er það svo sannarlega Miðflokkurinn. Ég fagna þeim mikla áhuga á á þessu útgerðarformi. Ekki hefur stuðningurinn komið þaðan, svo mikið er víst. Það sem við erum að gera og markmiðið er, eins og segir hjá okkur, að vera með 48 daga til strandveiða, fjórum sinnum 12 daga í maí, júní og júlí. Það er markmiðið. Við ætlum ekki hins vegar að fara að umbylta kvótakerfinu, það ætlum við ekki að gera. Það getur vel verið að við náum ekki 48 daga markmiðinu í ár (Gripið fram í: Nú? )en við stefnum ótrauð á það. Það sem þetta snýst um er tonnafjöldi í kerfinu. Til að ná 48 dögum þá er þetta sáraeinfalt mál, það er spurning um fjölda báta, fjölda daga og kílófjölda á dag. Við ætlum ekki að breyta kílóafjöldanum á dag, sem er 774 kíló af óslægðum þorski á dag. Þá er það spurning hvort það verði 40 dagar eða 48 dagar. Og við ætlum að reyna að takmarka inngöngu inn í kerfið svo þetta verði ekki algjörlega stjórnlaust. Það er það sem við stefnum á með reglugerðarbreytingunni. Það er það sem við erum að fara að gera. Þetta er sáraeinfalt mál. Þú getur margfaldað þetta; dagafjöldi sinnum kíló á dag sinnum fjöldi báta og sinnum nýtingarhlutfall. Það er það sem við ætlum að gera með reglugerðinni. Ég skal lofa hv. þingmanni því að það munu aldrei verða jafn mörg tonn sett í kerfið og næsta sumar.