157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

strandveiðar.

[15:37]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er óvanalegt að maður sé ánægður með svar því að þarna bara upplýsti ráðherrann að auðvitað voru strandveiðisjómenn og fjölskyldur þeirra plataðir í aðdraganda síðustu kosninga. Það er raunar sérstakt, það er einhvers konar alltumlykjandi fyrirlitning á fjölskyldueiningunni sem birtist í málum hér í þinginu; bæði með afnámi samsköttunarheimildar að hluta og hér sjáum við að það er sérstök árás gerð — það er gott að hv. fyrrverandi formaður atvinnuveganefndar sé hér til skrafs og ráðagerðar með hæstv. ráðherra. En með þessari aðgerð hér, að gera kvöð um 100% eignarhald báts, er alveg sérstök atlaga gerð að fjölskylduútgerðum. Þannig að menn þurfa að fara í málamyndasamninga, eins og segir í umsögn Landssambands smábátaeigenda, með leyfi forseta:

Þetta „bitni fyrst og fremst á fjölskylduútgerðum. Áfram verði hægt að gera samninga til málamyndunar sem ganga til baka 1. september.“

Það er ágætt að það sé gengist við því að þetta hafi allt verið tómir málamyndasamningar og það hefur ábyggilega átt við einhverja sem standa í slíkri útgerð hér í þessum þingsal, eins og aðra. Þannig að ég ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Hver er afstaða ráðherrans til þeirra sjónarmiða sem frambjóðandi Flokks fólksins setti fram í umsögn til ráðherrans?