strandveiðar.
Virðulegi forseti. Flokkur fólksins hefur barist fyrir auknum strandveiðum, að tryggja 48 daga. Ef við myndum búa í hinum besta heimi allra heima þá myndum við vilja frjálsar strandveiðar, að sjálfsögðu. En við erum í núverandi kvótakerfi svo við lifum við það. Varðandi fjölskyldurnar erum við núna að skoða hvort við eigum að fara upp í 100% eignarhald á bátunum eða ekki en það eru fleiri sem geta stundað þessar veiðar með þeim aðila sem er með leyfið sjálft og þeim sem á bátinn sjálfan. Það er ekki þar með sagt að það sé algerlega greypt í stein hvort við verðum með 100% þó svo að það hafi verið sett í samráðsgátt. Samráðsgáttin er að tékka á því hvernig gagnrýnin er. Að sjálfsögðu viljum við standa vörð um fjölskylduformið hvað þetta varðar en við erum að fara að veita leyfi til einstaklinga og þá er spurningin hvort við ætlum að halda 51% í eignarhaldi eða fara upp í 100%, svo það sé sagt. Það breytir því ekki að í strandveiðum á næsta ári mun tonnafjöldinn vera það mikill að það verður með því mesta sem mun sjást í strandveiðum á Íslandsmiðum. Við stefnum ótrauð á 48 dagana en það gæti verið að það yrðu ekki nema 40 dagar. Það fer allt eftir fjölda báta og fjölda tonna sem fara í kerfið. Það á eftir að koma í ljós og mun koma í ljós á allra næstu vikum.