157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[15:48]
Horfa

Eva Pandora Baldursdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessari skýru framkvæmdaáætlun sem byggir á ábyrgð, gegnsæi og mælanlegum markmiðum. Hún leggur grunn að því að jafnrétti sé ekki einungis stefnuyfirlýsing heldur raunveruleg framkvæmd í lífi fólks. Ég tel mjög mikilvægt að við horfum til framtíðar með festu og tryggjum að kerfi hins opinbera endurspegli virðingu fyrir öllum einstaklingum. Persónulega vil ég sérstaklega fagna þeirri aðgerð sem kallar á rannsókn á launamun innfæddra kvenna og innflytjendakvenna. Sem dóttir innflytjendakonu veit ég að reynsla fjölskyldna og einstaklinga á vinnumarkaði getur verið mismunandi á marga lund. Þetta eru ekki bara tölur á blaði heldur spegill á það hver fær tækifæri og hver situr eftir. Þær lýsa lífi fólks sem hefur lagt hart að sér og hvert framlag er dýrmætt fyrir íslenskt samfélag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)