framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér jákvætt markmið í þessum málum sem við greiðum hér atkvæði um, jafnrétti kynjanna og upplýsingar um stöðu jafnréttismála. En við þekkjum það, úr máli sem var nýlega hér til umfjöllunar um jafnlaunavottun, að það er ekki nóg að hafa góðan hug. Það er ekki alltaf hugurinn sem gildir og það eru nokkur atriði í þessu máli sem við erum að fara að greiða hér atkvæði um sem eru þess valdandi að ég get ekki verið á grænu í málinu og mig langar að nefna nokkur. Í fyrsta lagi óskiljanlega orðasúpu í þessu máli sem er bara með þannig hætti að venjulegt fólk getur hreinlega ekki skilið stóran hluta af þessu þingmáli.Mig langar líka að nefna fjárútlát sem fylgja málinu, milljónir hér og milljónir þar, og svo langar mig að nefna sérstaklega tillögu um sérstök námskeið opinberra starfsmanna fyrir kjörna fulltrúa. Bara það atriði eitt og sér væri auðvitað nóg til þess að vera á rauðu í dag. Ég held að það væri nær að við kjörnir fulltrúar héldum slíkt námskeið fyrir opinbera starfsmenn.