157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[15:50]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér í þessari margþátta áætlun ægir sannarlega öllu saman. Sumt er sannarlega ekkert óeðlilegt af hálfu ríkisvaldsins en annað er, eins og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir lýsti og notaði orðið orðasalat, einfaldlega einhvers konar vitleysa. Þá er ekkert óeðlilegt að menn fari í gegnum þetta lið fyrir lið og geti þá tekið afstöðu til málanna eins og þau leggja sig. Ég er ekki í vafa um að þar muni þingmenn bara gera eðlilega grein fyrir sínum atkvæðum vegna þess að hér, eins og ég segi, ægir öllu saman og væri afskaplega óheppilegt ef menn þyrftu að greiða atkvæði um svona plagg í heild. Það er einfaldlega ótækt að mínu mati.