157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[15:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er um mál að ræða sem er alls konar en hér er í raun samt verið að þenja út báknið og ýmis kostnaður sem þessu fylgir. Það er sérstakt að lesa það að Jafnréttisstofa, með leyfi frú forseta, „haldi námskeið og veiti fræðslu um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur sveitarfélaga.“ Og áfram, með leyfi forseta:

„Unnið verði að því að fanga kynjamynstur hugrænnar vinnu á Íslandi. Unnin verði eigindleg rannsókn á hugrænni vinnu með viðtalsviðbót við megindlega tímarannsókn sem Hagstofa Íslands gerði fyrir forsætisráðuneyti.“

Ég held að þetta fangi ágætlega það sem stendur í þessari áætlun. Þó að margt gott sé í henni líka þyrfti að grisja allverulega til í þessu og gott að að kjósa um hvert fyrir sig.

(Forseti (ÞSv): Á Alþingi greiðum við atkvæði um mál.)