framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að við séum að afgreiða þetta góða mál hér í dag. Við höfum fjallað um það í allsherjar- og menntamálanefnd síðastliðnar vikur og mánuði og þar hefur það fengið góða umfjöllun. Ég er að reyna að greina ræðu þingflokksformanns Miðflokksins, hvort hér sé á ferðinni einhvers konar fundarskapaaktívismi í mótmælaskyni við að ráðherra sé að leggja til jafnréttisáætlun fyrir þingið, leggja til að brjóta þessar aðgerðir upp. Ef markmiðið er að fella það út að jafnréttisáætlun sé lögð fyrir þingið þá ætla ég að fá að mótmæla því. Við vinnu málsins í nefndinni kom mjög margt gagnlegt fram og t.d. fæddist ný aðgerð í samtali minni og meiri hluta sem snýr að úttekt á töku veikindaréttar á meðgöngu í tengslum við fæðingarorlof, hvernig konur eru að taka veikindarétt í auknum mæli í tengslum við fæðingarorlof. Þetta er bara dæmi um gott mál sem kom frá minni hluta, meiri hlutinn tók vel í það og bætist þá við þessa aðgerðaáætlun sem ráðuneytin og ráðherrar munu svo framfylgja. Ég tel þessi vinnubrögð góð. Ég hlakka til umræðunnar um jafnréttismálin. Þau skipta máli og ég vona að þetta verði ekki allt í svona einhverjum skætingi og útúrsnúningi (Forseti hringir.) heldur bara málefnaleg nálgun á það hvort við séum að stuðla að jafnrétti og hvort það sé markmið yfirhöfuð.