framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég vil sérstaklega þakka þingflokksformanni Samfylkingarinnar fyrir hans síðustu orð því það er þannig, þegar þetta mál er skoðað, að umsagnaraðilar eru gegnumgangandi jákvæðir í garð þessarar vinnu. Mér finnst líka ástæða til að nefna það að hér erum við að tiltaka verkefnin og hver þau stærstu eru. Hér eru verkefni og aðgerðir til að sporna gegn ofbeldi gegn stúlkum og konum í samfélaginu. Þetta eru aðgerðir um jafnrétti á vinnumarkaði. Þingmaðurinn nefndi líka þessa fæðingarorlofsaðgerð sem þarna varð til. Hér eru aðgerðir sem lúta að stöðu erlendra kvenna í íslensku samfélagi og síðan tölfræði og gögn. Hér er líka aðgerð sem mér finnst skipta miklu máli af því að við höfum verið að ræða um líðan drengja í samfélaginu; sérstök vinna sem tekur utan um það hvað er að gerast með drengina í samfélaginu okkar. Hvers vegna er t.d. mikið brottfall þeirra úr framhaldsskóla? Ég held að það sé bara gott og gæfulegt að við ræðum þetta vel, en öll hljótum við að vera sammála um að við viljum búa í samfélagi þar sem jafnrétti ríkir.