framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir það að það er sérstakt að ætla að fara að greiða atkvæði um tillögu sem þessa sem er í 40 liðum, gríðarlega ólíkum liðum. Þarna eru t.d. í aðgerðaáætlun liðir sem heita jafnrétti og gervigreind, hugræn vinna kynjanna, söfnun kyngreindra tölfræðigagna í landbúnaði, söfnun kyngreindra tölfræðigagna í sjávarútvegi, kynferðisleg áreitni í ferðaþjónustu og fleira í þessum dúr sem sá sem hefur ekki verið í þessari nefndarvinnu er ekki tilbúinn til að greiða atkvæði með að svo stöddu og skilur ekki alveg hvað í þessu felst. En ég tek undir það með hæstv. ráðherra að það eru góð atriði í þessari áætlun eins og hvað varðar brotthvarf drengja og nemenda með annað tungumál, einnig EKKO-málin í framhaldsskólunum og fleira sem maður myndi vilja styðja. En það er vægast sagt óljóst hvort hitt þjóni tilgangi sínum.