framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Svona í ljósi orða hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar þá ætla ég að gera þriðju atrennu að því fyrir hönd þingflokks Miðflokksins að útskýra að það er auðvitað ótækt að setja þingheim í þá stöðu að greiða atkvæði um 40 mismunandi tillögur í einu knippi. Það gæti sennilega enginn nema þingmaður — nei, ég ætla ekki að segja þetta. En alla vega þurfa menn að vera mjög meðfærilegir í taumi ef þeir eru sammála öllum 40 efnisatriðum máls sem spannar jafn vítt svið og hér um ræðir. Menn verða líka að veita því athygli hvort það sé allt yfir línuna teppalagt með sama lit, því að það ber ekki vott um að hv. þingmenn hafi endilega sett mikla vinnu í að setja sig inn í það mál sem hér er undir. En það verður bara áhugavert að fylgjast með því sem fram undan er.