framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég sé mig knúna til að koma hingað upp í kjölfar orða hv. þm. Dags B. Eggertssonar, sem manneskja sem hefur gjarnan tortryggt mál þar sem jafnrétti hefur verið markmiðið. Ég nefni aftur hið góða dæmi sem jafnlaunavottunin er, þar sem það sannaðist svo vel að tilgangurinn helgar ekki alltaf meðalið. Ég heiti því að ég mun halda áfram að koma upp og tortryggja mál til þess að þau fái hér umfjöllun og umræðu og veki til umhugsunar. Það er ekki af því að ég sé ekki jafnréttissinni, ég er mikill talsmaður þess og trúi á jöfn tækifæri, heldur einmitt út af þeirri reynslu sem við höfum af því að fara í einhverja vegferð byggða á góðum og háleitum markmiðum sem síðan snúast upp í andhverfu sína. Ég mun halda því áfram.