157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:05]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er víða litið upp til okkar þegar kemur að jafnréttismálum og maður fær að heyra það og fyllist gjarnan stolti þegar maður finnur hversu sterk staða Íslands er á alþjóðavettvangi þegar kemur að þeim málum. Mér finnst þessi tillaga góð og ég mun styðja hana. Mér sýnist að helsta gagnrýnin á hana sé að hún sé löng, efnismikil og komi við marga ólíka málaflokka og þarna séu nokkur orð sem einhverjum finnst erfitt að skilja. Ég mun styðja þetta og ef fólk vill greiða atkvæði um hvert atriði fyrir sig þá er ekkert að því, það er auðvitað það sem þingsköp gera ráð fyrir; bara áfram þið, ef fólk vill hafa það svoleiðis. Niðurstaðan með þessu verður þá kannski sú að það liggi fyrir að það sé skýr þingmeirihluti fyrir hverri einustu tillögu sem hér hefur verið lögð fyrir og það er þá kannski til einhvers unnið.