framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég fagna því að þetta mál sé komið til atkvæðagreiðslu og auðvitað getum við haft alls konar skoðanir á því hvort þetta sé brotið upp í 40 liði eða ekki. En það hafa verið greidd atkvæði um svona áætlun í heilu lagi og þótti ekki mikið tiltökumál þegar það var gert og meira að segja samþykkt af þingmönnum sem hér hafa þó verið að tala um að það sé eitthvað óeðlilegt að gera það, svo að það sé nú nákvæmlega sagt. Þessi mál þurfa auðvitað að vera í stöðugri endurskoðun og af því að hér hefur verið talsvert fjallað um jafnlaunavottunina þá vil ég meina að það hafi verið mikil framsýni hjá ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar að fara af stað með það mál. En síðan höfum við líka manndóm í okkur til þess að endurmeta og endurskoða ef hlutirnir fara kannski ekki nákvæmlega eins og lagt er upp með, svo að maður haldi því bara til haga hvaðan það mál var ættað.