framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Þér minntuð á það hér áðan að farið hefði fram umræða um þetta mál. Það er alveg rétt en ef áhyggjur hæstv. forseta, eins og ég túlkaði orð hæstv. forseta, snúa að tímastjórnun hér á Alþingi þá bendi ég hæstv. forseta á að það geti nú bara verið fagnaðarefni fyrir forseta að hér hafi ekki átta hv. þingmenn hið minnsta og 63 hið mesta þurft á langri umræðu um þetta mál að halda þar sem færi fram ein umferð um hvert þessara 40 atriða heldur geti það verið afgreitt hér á tiltölulega skömmum tíma. Það er hins vegar búin að vera tilhneiging stjórnvalda alllengi að leggja fram tillögur og jafnvel frumvörp þar sem eitt og annað jákvætt er falið í tillögu sem inniheldur mjög margt neikvætt og ef menn leyfa sér að efast um þessar tillögur (Forseti hringir.) eru þeir gagnrýndir fyrir að vera á móti hinu jákvæða. Þetta er ekki heppilegt fyrirkomulag, frú forseti. Kannski er bara ágætt að samgönguáætlun (Forseti hringir.) og aðrar stórar áætlanir séu afgreiddar með þessum hætti í framhaldinu.