framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að þessar tillögur séu komnar fram. Þær eru margar. Þær komu úr ólíkum áttum. Ég get tekið undir að við höfum kannski ólíkar skoðanir á hverjar af þessum tillögum séu mikilvægastar og í ljósi þess að við erum að tala um takmarkaða fjármuni þá væri jákvætt ef þingheimur gæti sameinast um að forgangsraða tillögum sem við erum öll sammála um sem við náum kannski ekki í þessari yfirferð. En mér finnst þetta vera mikilvægt. Mér finnst að við eigum að tala hátt og skýrt um jafnréttismál. Við getum haft áhyggjur og ýmsar skoðanir á hvernig mál eru framkvæmd, hvort þau séu of íþyngjandi og annað. En jafnréttismál eru gríðarlega mikilvæg fyrir íslenskt samfélag og við eigum ekki að gefa neinn afslátt hvað þau varðar.