framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Það mætti kannski stundum halda að þessi umræða eigi sér stað í algjöru tómarúmi, en við búum auðvitað í heimi þar sem orðið hefur afturför þegar kemur að jafnréttismálum á undanförnu ári. Bæði hafa stór ríki beinlínis lagt til að jafnréttisáherslum verði vikið til hliðar og að þeir sem starfa í þeim málum verði að finna sér eitthvað annað að gera. Framlög til samtaka eins og UN Women hafa sömuleiðis verið skorin niður af mörgum ríkjum, þannig að mér fyndist við ekki senda hér rétt skilaboð ef þingið myndi ekki taka undir þennan lið.