framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Það er ekki útilokað að ég hefði setið hérna eins og dádýr í bílljósunum og samþykkt þessa tillögu eins og stundum kemur fyrir, ég get játað að það kemur fyrir að maður samþykkir hér ýmislegt í þingsal sem fer fram hjá manni, ef ekki hefði verið fyrir nákvæmlega þessa tillögu. Hún vakti athygli mína kannski á málinu í heild og hversu brýnt það hefði verið að kjarna þessa tillögu aðeins betur, fækka tillögum jafnvel og henda sumum út og skerpa betur á þessu. Hér er fjallað um hugræna vinnu kynjanna og kveðið á um að unnin verði eigindleg rannsókn á hugrænni vinnu með viðtalsviðbót við megindlega tímarannsókn sem Hagstofa Íslands gerði fyrir forsætisráðuneyti. Í þessari eigindlegu rannsókn verði rýnt betur í niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar sem endurspegla hugræna vinnu og ósýnilega verðmætasköpun hennar. Það er auðvitað ekki, virðulegur forseti, hægt að greiða atkvæði með þessu, því miður, og Miðflokkurinn leggst gegn þessari tillögu.