157. löggjafarþing — 65. fundur, 2. feb. 2026.
framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
90. mál
Virðulegur forseti. Hér er fjallað um það að vinna að nýskapandi leiðum við fjármögnun jafnréttisverkefna ríkisins með útgáfu sjálfbærra kynjaðra skuldabréfa sem fjármagna þá verkefni sem stuðla að kynjajafnrétti.
Virðulegur forseti. Hér er bara tilraun til að fegra ríkisbókhaldið og skuldasöfnun með því að skreyta skuldasöfnunina, sem hér áður fyrr var algengt að gera með blómum en nú á að skreyta með konum. Miðflokkurinn leggst gegn þessari nýstárlegu fjármögnun ríkisútgjalda.