framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Hér er lagður til stuðningur við það sem er kallað jafnrétti í nýsköpun. Það hefur hallað mjög á konur þegar skoðað hefur verið hver skiptingin hefur verið í hinum ýmsu nýsköpunarsjóðum sem ríkissjóður styður við, hversu lágt hlutfall kvenna og fyrirtækja sem konur stýra hefur verið samanborið við þau fyrirtæki sem karlar stýra. Það er sjálfsagt að vinna að því að skoða hvort þarna sé hægt að bæta úr og ef niðurstaðan er sú að tilefni sé til þá verði það gert. Þannig að Miðflokkurinn styður við þessa tillögu nr. 6, um jafnrétti í nýsköpun, og eins og flestir hér í salnum.