157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:29]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Þingflokkur Framsóknar styður þessa tillögu og það er afar mikilvægt að fá tölfræðileg gögn varðandi fjölmiðlaumfjöllun um íþróttaiðkun kvenna og í rauninni allt sem því tengist þannig að við getum talað út frá tölfræði í staðinn fyrir tilfinningum. En mig langar samt sem áður að árétta að það er mikilvægt að kalla fram upplýsingar varðandi styrki til íþrótta, bæði karla og kvenna, því að það hallar verulega oft á konur þegar kemur að styrkveitingum, sérstaklega þegar kemur að fyrirtækjastyrkjum. Það væri kannski áhugavert að taka þá umfjöllun líka í tengslum við þessa fjölmiðlaumfjöllun, að skoðaðar væru þessar styrkveitingar til kvenna.