157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:30]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Kannski í kjölfar umfjöllunar hv. þm. Ingibjargar Isaksen þá held ég að það sé nefnilega sjálfstætt markmið þegar við erum að ræða um umfjöllun í fjölmiðlum almennt séð, og þá íþróttir eins og hún var að gera, að þá þurfum við að skoða heildarsamhengi hlutanna. Hallar á konur hvað varðar styrki í íþróttum? Já. Er það til þess fallið að viðhalda skekkju um að það sé jafnrétti í íþróttum að vilja ekki ræða þetta, að vilja ekki rýna gögnin, að kalla ekki fram tölfræðina? Það er sjálfstætt vandamál en við erum á þeim stað í þinginu að láta sem svo sé ekki. Við vitum að hvað varðar umfjöllun um kynin, hvort sem við erum að tala um fólk í áhrifastöðum eða annað, að það hallar á, þannig að ég er mjög ánægð með þessar tillögur tvær, um jafnrétti í fjölmiðlaumfjöllun almennt séð en ekki síst hvað varðar íþróttirnar því þar er skekkjan býsna augljós öllum þeim sem vilja sjá.