157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:37]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Með leyfi forseta, langar mig að lesa upp það sem stendur hérna, en hér kemur fram að útbúið verði mælaborð sem inniheldur þá kyngreindu tölfræði sem til er og vistað á vefsíðu dómsmálaráðuneytisins og Jafnréttisstofu. Ég ætla að gera ráð fyrir því að þetta sé einhver misskilningur, að það eigi ekki að búa til mælaborð um öll gögn sem til eru. Ég er frekar hlynnt mælaborðum en þau þurfa þá að sýna fram á eitthvað sem meikar sens, fyrirgefðu, frú forseti. Ég ætla að leyfa þessari tilraun að njóta vafans og gera ráð fyrir að þetta snúi að því að það eigi að safna saman gögnum sem til eru. Auðvitað er ég á móti því að það þurfi að eyða 2 milljónum í þetta. Af hverju nýtir ríkisstjórnin ekki tækifærið og gerir þetta bara án þess að það þurfi að leggja til meiri pening? Getur ekki dómsmálaráðuneytið eða Jafnréttisstofa gert þetta bara með þeim fjárheimildum sem þau hafa? Ég ætla ekki að leggjast gegn þessari tillögu en ég held að það sé einhver misskilningur í henni.