157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:41]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Söfnun kyngreindra tölfræðigagna í landbúnaði — hér er vissulega ekki verið að vísa til bústofnsins, með leyfi forseta:

„Farið verði í markvissa söfnun á kyngreindum tölfræðigögnum varðandi stöðu kynjanna í landbúnaði. Skilgreint verði umfang og eðli þeirra gagna sem þörf er á að séu til staðar svo að hægt sé að leggja raunhæft mat á stöðu kynjanna innan greinarinnar. Í kjölfarið verði lagðar til leiðir til söfnunar nauðsynlegra gagna sem nýtast stjórnvöldum við samþættingu kynjasjónarmiða við ákvarðanatöku og stefnumótun í landbúnaði.“

Þetta er aldeilis greinargóður texti. Hvað er nákvæmlega verið að leggja til? Það fylgir þessu til að mynda ekki fjármagn. Til að bíta höfuðið af skömminni á greinilega ekkert að gera með þetta. Þetta er bara falleg yfirlýsing. Ég held að það væri fínt fyrir þessa ríkisstjórn að byrja bara á því að hætta að þvælast fyrir landbúnaðinum. Það væri bara gott start fyrir landbúnaðinn.