157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:47]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Maður getur reynt að aðstoða hv. þm. Pawel Bartoszek við að reyna að gera sér grein fyrir því hvernig við þingmenn Miðflokksins kjósum. Við kjósum almennt gegn því að sóa tíma ríkisvaldsins og fjármunum skattgreiðenda í tilgangslaust rugl eins og aðgerð 16, samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða við úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði. Þarna á sem sagt að gera einhvers konar úttekt á þessum milljarðastyrkjum vegna rafbíla sem hafa farið til yfirstéttarinnar á Íslandi og og tillöguhöfundar eru í tómum vandræðum við að reyna að leggja þetta niður fyrir sér vegna þess að það virðist vera eins og karlar séu að kaupa fleiri bíla enda þótt styrkirnir eigi, samkvæmt hugmyndum tillöguhöfunda, að höfða meira til kvenna. Ég velti fyrir mér hvort karlarnir séu einfaldlega þeir á heimilinu sem fara og kaupa bílinn eða hvort konurnar vilji ekki rafbíla. Það liggur einhver fiskur undir steini þannig að aðgerð 16 á vonandi eftir að varpa ljósi á þetta og jafnvel þótt ég greiði atkvæði gegn henni verð ég að viðurkenna að mér leikur eiginlega forvitni á að vita hver niðurstaðan verður.(Forseti hringir.) Ég tek þó enn fram að ég tel ekki að við eigum að verja fjármunum skattgreiðenda í að reyna að komast að þessari niðurstöðu.