157. löggjafarþing — 65. fundur, 2. feb. 2026.
framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
90. mál
Virðulegi forseti. Ég styð þessa tillögu sem er til þess fallin og mælir fyrir því að við léttum á þessu kerfi sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur þegar mælt fyrir í þinginu. Við vonumst til þess að það mál fái góða og hraða afgreiðslu í gegnum þingið og við leggjum öll okkar af mörkum til þess. En ég ítreka það jafnframt að ég er eindregið þeirrar skoðunar að við eigum að leggja af þetta kerfi og gera það að fullu valkvætt og mun áfram berjast fyrir því hér á þingi.