framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Við erum að greiða atkvæði um lið 19, um rannsóknir á launamun kynjanna, og að gerð verði rannsókn á launamuni kynjanna á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við Hagstofu Íslands. Það er auðvitað mjög mikilvægt að við tökum höndum saman og greinum þá stöðu sem er á markaði, ekki bara á milli kynja heldur að horfa líka á þá fjölmörgu hópa sem undir eru. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við tökum þessar greiningar og gerum síðan nauðsynlegar breytingar sem samfélag og vinnum að auknum jöfnuði á vinnumarkaði. Ég segi já.