157. löggjafarþing — 65. fundur, 2. feb. 2026.
framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
90. mál
Frú forseti. Hér erum við að tala um atriði sem kemur til í störfum nefndarinnar og gengur út á það að meta áhrif meðgöngu og fæðingarorlofs á stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Þetta er atriði sem mér fannst vanta inn í framkvæmdaáætlunina. Ég vil bara þakka nefndinni fyrir ágætt starf og þá sérstaklega framsögumanni málsins, hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur, fyrir að hafa tekið vel í þessa hugmynd og því greiði ég atkvæði með þessu.