157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:06]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Þingflokkur Framsóknar styður þessa tillögu, þessa viðbót, sem bættist við. Þetta er mjög jákvæð viðbót. Mig langar hins vegar að benda á það að í ljósi þessarar tillögu er líka áhugavert að skoða töku fæðingarorlofs í tengslum við fyrirbura. Ég hef fengið upplýsingar þess efnis frá fæðingardeildinni að þegar einstaklingar eignast fyrirbura er það yfirleitt konan sem tekur út fæðingarorlofið þó svo að þau séu bæði vissulega stödd á sjúkrahúsinu, þannig að þetta er kannski eitthvað sem ætti að taka til skoðunar í þessari vinnu.