157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég hefði kannski mátt vera skýrari með fjármögnun hér í upphafi en allir þessir fjármunir eða þessar 50 millj. kr. á fjórum árum, sem er nú kannski engin ósköp, eru þá þegar til staðar inni í ramma og hér er verið að ræða það hvernig þessum fjármunum verði varið. Dómsmálaráðuneytið fer með þessi mál í krafti þess að jafnréttismálin fluttust þangað við myndun síðustu ríkisstjórnar.

Mig langar varðandi þennan kafla, D-kaflann, að segja að í mínum huga er þetta svona hjartað í því sem við erum að gera. Við vitum að á Íslandi, sem stendur sig mjög vel og er framarlega í jafnréttismálum, er það engu að síður staðreynd að konur verða fyrir ofbeldi vegna þess að þær eru konur. Þær verða fyrir heimilisofbeldi. Þær verða fyrir kynferðislegu ofbeldi í langtum meiri mæli en karlmenn. Þetta nefni ég af því að þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Jón Pétur Zimsen, nefndi: Getum við ekki bara talað um ofbeldi? Við erum að tala um ofbeldi en við ætlum ekki að fela veruleika kvenna hvað þetta varðar, að þær verða fyrir ofbeldi vegna þess að þær eru konur.