157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:14]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Um leið og ég fagna því að við séum að taka til umfjöllunar nokkrar tillögur sem snúa sérstaklega að því að draga úr kynbundnu ofbeldi þá er ég ekki í misskilningi með það að ákveðnir fjármunir hafa verið teknir frá fyrir þessa tillögu í heild sinni en geri athugasemd við forgangsröðun og velti sérstaklega fyrir mér þessari tillögu. Ég stóð í þeirri trú að við værum með úrræði fyrir gerendur heimilis- og kynferðisofbeldis, sem eru fangelsin okkar. Ef til vill væri hægt að nýta þessa fjármuni í að styrkja þau enn frekar. Þess vegna sit ég hjá varðandi þessa tillögu sérstaklega.