157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:15]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Þetta er kannski sama eða svipuðu marki brennt og aðrar tillögur sem hafa verið hérna og miðast að einstökum atvinnugreinum en hér fyrr höfum við greitt atkvæði um tillögur er lúta að sérstökum launakönnunum eða skoðun mála, kyngreiningu í ákveðnum atvinnugreinum, sjávarútvegi og landbúnaði. En svo er allt í einu ferðaþjónustan dregin upp vegna kynferðislegrar áreitni og það fullyrt hér að þar sé algeng kynferðisleg áreitni. Ég hef svo sem ekki forsendur til að meta hvort svo sé en mér finnst afar sérstakt að draga eina atvinnugrein út með þessum hætti, með einhverri sérstakri aðgerð af þessum toga. Samtök í ferðaþjónustu hafa bent á að þessu fé væri kannski betur varið til þess að safna gögnum sem nýtast bæði ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum, tengdum greinum, hafi menn áhuga á því. Það er afar sérstakt að draga þessa einu atvinnugrein út af því að manni finnst ótrúlegt (Forseti hringir.) að það sé einhver meiri kynferðisleg áreitni í þessari atvinnugrein en annarri. Miðflokkurinn situr hjá við þessa tillögu.