157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:20]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. E-kaflinn fjallar um íþrótta- og æskulýðsstarf og menntun og tillögurnar eru allar úr þeim ranni. Mig langar, fyrst ég er hérna uppi, að nefna aðeins, af því að hér er fólk að tala um ferðaþjónustuna, að ég get vel skilið að þetta slái þingheim með þessum hætti en þá verðum við að hafa í huga að tillögurnar eru komnar úr hverju ráðuneyti fyrir sig. Ráðuneyti atvinnuvega nefndi þessa atvinnugrein sérstaklega og þannig er vinnan unnin. Það er ekki þannig að þetta fæðist í engu samhengi heldur verðum við að hafa í huga að tillögurnar eru sóttar innan úr ráðuneytunum og þetta er tillaga sem lögð er á borðið með þessum hætti.