157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:24]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Þingflokkur Miðflokksins styður við þessa tillögu, sem er í rauninni tvíþætt; annars vegar varðar hún brotthvarf drengja og hins vegar nemenda með annað móðurmál en íslensku. En við verðum líka að hafa það í huga að við stillum ekki upp þeirri mynd að unglingum sé gert erfitt að velja sér þann farveg sem hentar hverjum og einum best. Það eru bara býsna margir sem hentar að fara í störf sem kalla ekki á að setið sé í lengri tíma á skólabekk og við megum ekki teikna upp þá mynd að hún sé alslæm og af hinu vonda. Bæði varðar þetta unglingana sem þurfa að taka þessa ákvörðun og sömuleiðis foreldrana sem styðja við börn sín. Ég ítreka að Miðflokkurinn styður við þetta mál en við verðum að gæta okkar á því að gera þá leið að stunda ekki langskólanám svo torvelda að börn og unglingar ílengist í námi sem betur færu og sinntu ýmsum öðrum störfum í samfélaginu heldur en langskólanám kallar á.