157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:26]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér virðist standa til að aðlaga allt nýtt námsefni að þessum furðu sjónarmiðum sumum sem ég lýsti hér fyrir örfáum liðum, taka tillit til fólks af öllum kynjum og fjölbreytileika samfélagsins, einhvers konar, með leyfi forseta, „woke“ ritstýring á öllu námsefninu í anda hinnar nýju hugsunar sem hefur tekið stjórn á ríkisvaldinu og meiri hluta þingheims en er nú ekki í takt við viðhorf meiri hluta almennings heldur er þetta einhvers konar hugmyndafræðilegt yfirstéttartal. Orðin fögur en markmiðin vafasöm. Ég felli mig ekki við þetta frekar en hitt.