157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það hefði verið klókt fyrir hæstv. dómsmálaráðherra að sleppa því bara að tiltaka þetta. Jafnvel fyrir hv. þingmenn er stundum vandræðalegt að horfa í pylsugerðina sem lagasetning hér er og undirbúning lagafrumvarpa. Þessi tillaga er bara um að unnið verði að heildarendurskoðun íþróttalaga og á meðal fyrirhugaðra breytinga verði ný ákvæði um jafnrétti í íþróttastarfi. Maður veltir því fyrir sér: Hvernig geta svona áform ratað inn í einhverja svona tillögu? Ég hefði talið betur fara á því að viðkomandi ráðherra sem með málið fer kynnti slíkt mál í samráðsgátt og svo væri hægt að ræða það og taka afstöðu til þess. En að bera það á borð við hv. þingmann að það sé einhver ein tillaga í þessari aðgerðaáætlun til margra ára — það er ekkert hægt að styðja svona og ekki heldur að leggjast gegn því. Það er þess vegna sem Miðflokkurinn greiðir ekki atkvæði um þessa tillögu.