framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka þessa ánægjulegu atkvæðagreiðslu og það að hafa fræðst aðeins um afstöðu Miðflokksins til jafnréttismála. Ég er nú margs vísari. Miðflokkurinn styður þannig aðgerðir gegn ofbeldi og Istanbúl-samninginn sem ég er bara glaður og þakklátur fyrir. Á hinn bóginn virðist mér Miðflokkurinn ekki styðja upplýsingasöfnun að öðru leyti nema þegar kemur að nýsköpunarfyrirtækjum; ekki neina fræðslu, ekki það að við tölum máli jafnréttis á alþjóðavísu og ekki að við segjum frá okkar árangri í jafnrétti heldur. Mér fyndist hún heldur rýr, útkoman úr jafnréttisáætlun Íslands, ef þessi sjónarmið myndu ein ráða ferðinni.