157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hér höfum við rætt, í ágætisumræðu og mikilvægri, mál sem er lýsandi fyrir það sem ég hef nú alloft sett út á hér á undanförnum árum, þ.e. mál sem skal metið út frá umbúðum og yfirlýstum markmiðum en ekki innihaldinu og raunverulegum áhrifum. Fáeinir hv. þingmenn hafa komið hér upp og skammast yfir því að menn skuli hafa leyft sér að ræða innihaldið þegar umbúðirnar eru svona fallegar. Ég hef notað sem dæmi að ef ríkisstjórn kæmi með frumvarp sem héti frumvarp um jafnrétti og velferð fyrir alla og einhver leyfði sér að setja út á innihald þess máls og útskýra, að það myndi ekki skila raunverulegu jafnrétti, að það myndi ekki skila raunverulegri velferð, hver yrðu þá viðbrögðin frá þingmönnum eins og hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp til að andmæla umræðunni í dag? Þau yrðu: Hvernig getur þessi maður leyft sér að vera á móti jafnrétti og velferð? Við verðum hér á Alþingi að stefna á að lyfta umræðunni á hærra plan og láta hana byggja á innihaldi og raunverulegum áhrifum mála.