framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Herra forseti. Hv. þm. Pawel Bartoszek reyndi ítrekað að misskilja það sem kom fram í máli þingmanna Miðflokksins. Hann horfir kannski aftur á þetta og fer betur yfir hvað megi gera betur. Hins vegar kom fram mjög mikilvægur punktur. Sami hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á það hvernig við gætum verið á móti máli þegar við fáum peninga frá Evrópu. Þarna er kannski komin skýringin á því af hverju Viðreisn vill fara í Evrópusambandið. Halda menn að peningar sem koma frá Evrópu séu ókeypis? Hver heldurðu, herra forseti, að borgi þá peninga? Það eru auðvitað skattgreiðendur þeirra landa sem eru í Evrópusambandinu og ef Ísland vill fara þar inn þá munum við bara taka þátt í að borga meira fyrir önnur lönd en Ísland.