sýslumaður.
Herra forseti. Hér, eins og í mörgum öðrum málum, hefur ríkisstjórnin ekkert hlustað. Fjölmargar ábendingar hafa komið fram um að bæta þetta mál en ríkisstjórnin hefur ekkert hlustað og breytingarnar sem liggja frammi í þessu máli eru aumt yfirklór. Miðflokkurinn er á móti þessu máli. Miðflokkurinn er á móti því að störf, hálaunastörf helst, séu markvisst flutt af landsbyggðinni því að það er það sem er að gerast í þessu máli. Þau munu markvisst hverfa af landsbyggðinni. Ég heyrði sögu af því bara síðast í dag að það er þegar byrjað að vinna að því að færa innheimtuna hingað á einn stað í höfuðborginni. Og hvernig hefur innheimtan verið hjá sýslumönnum um landið? Hún hefur alltaf verið langhæst og langbest á litlu embættunum úti á landi. Ríkisstjórnin hlustar ekki á nein rök.