157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

sýslumaður.

111. mál
[17:57]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Hér er komið að ögurstund. Eins og ég sagði í fyrri ræðu er ríkisstjórnin að fara fram með þetta mál sem ég tel vera andstætt landsbyggðinni. Hún hefur reyndar sýnt í störfum sínum þetta rúma ár sem hún hefur starfað að hennar spjót beinast öll að landsbyggðinni og þetta er slíkt mál. Þessar breytingartillögur um 65% starfa og svo endurskoðun eftir þrjú ár eru bara aumt yfirklór. Þetta er feluleikur. Þetta er sjónhverfing. Þetta er lélegt töfrabragð. Ég hef oft séð þetta áður. Því miður beinist þetta gegn landsbyggðinni og þetta mun soga hálaunastörf frá landsbyggðinni hingað á höfuðborgarsvæðið. Ég segi nei.